|
Ýmislegt
Bloggarar
* Vi�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�
* Vi�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�
|
21.05.2007 13:13:58 / Sara
»
10.03.2007 00:06:49 / Sara
»
29.01.2007 10:54:53 / Sara
»
22.01.2007 09:27:29 / Sara
Á hvernig landi
lifum við eiginlega í dag??
Ég held að svona fólk eins og ég sem heldur að Ísland sé besta land
í heimi og ekkert slæmt geti komið fyrir nokkurn mann þurfi aðeins
að slá sig utan undir og setja sig í samband!
Eftir að hafa horft á þennan þátt í gær vissi ég ekki alveg hvert
ég ætlaði. Mér fannst þetta svo ógeðslegt. Að það séu fullorðnir
karlmenn, kanski flestir 37+ að sækjast eftir kynlífi með barni sem
er varla orðið kynþroska!
Mér brá frekar mikið þegar þeir sýndu hvað maðurinn, Ágúst, hafði
verið að segja við stelpuna á msn. Það var ekki verið að skafa
neitt af því, bara komið sér beint að
efninu. Ég verð samt að segja að mér
finnst mjög virðingarvert hjá honum að mæta í viðtal og gera grein
fyrir sínum málum. Maðurinn er náttúrulega bara veikur.
En þrátt fyrir að hann sé veikur þá breytir það ekki því að hann er
búin að valda mjög miklum skaða á mörgum mannslífum, og hann á
aldrei eftir að geta lagað það. Ég get ekki ýmindað mér að nokkurt
barn á aldrinum 10-18 geti tekið á einhverju svona. Ég hefði ekki
getað gert það þegar ég var yngri og ég gæti það örugglega ekki í
dag.
Og líka þrátt fyrir það að hann sé veikur er það sem hann gerði,
alveg ófyrirgefanlegt og hann á alls ekki að komast upp með
það.
En hins vegar þegar maður veit að hann er veikur þá breyttist
skoðun mín á honum, ekki á því sem hann gerði, heldur
á honum. Þetta virðist vera sjúkdómur eða einhvernskonar sjúkleg
fíkn sem þessi maður hefur á börnum. Og hann á alveg jafn mikinn
rétt á því að fá læknis- og sálfræðiaðstoð rétt eins og hver annar
fíkill eða sjúklingur. Það leysir ekkert að henda svona mönnum bara
í fangelsi og vona svo að þetta sé búið. Auðvitað eiga þeir að taka
út þá refsingu sem þeir eiga skilið, en ég held persónulega að það
ætti að fókusa aðeins meira á andlegu hliðina á þessum mönnum, því
það hlýtur að vera eitthvað mikið að, kanski eitthvað sem hefur
komið fyrir þá í æsku eða eitthvað því tengt. Mér finnst allavegana
mjög ógnvekjandi ef fólk fæðist bara svona. Og ég trúi eiginlega
ekki að það gerist.
Ég held allavegana að það sé árángursríkari leið heldur enn að
kasta þeim í fangelsi og vona svo það besta þegar þeir koma út.
Ég er ekki að reyna að taka upp hanskann fyrir hann eða hans líka,
mér finnst þetta einn ógeðslegasti glæpur sem hægt er að fremja á
nokkrum manni..eða barni. Og það er ekkert sem réttlætir þetta.
En ég er samt að reyna að horfa á þetta mál frá því sjónarhorni að
þetta er eitthvað sem þessi maður getur ekki stjórnað, ég þykist
vera viss um það að hann vill ekki eyðileggja mannslíf eða valda
neinum skaða...en hann er veikur og ræður ekki við
það.
Hann á að fá þá hjálp sem hann þarfnast.
Já ég veit ekki hvað ég á að segja meira! Svona er Ísland í
dag, ekkert öruggt. Börn mega ekki lengur vera á netinu án þess að
eiga það kanski á hættu að lenda í einhverju svona líku. Ég vona að
þetta verður komið í lag þegar ég eignast barn..ég get ekki ýmindað
mér hvernig það er að vera foreldri í dag.
Jæja hef ekki mikið meiri þörf til að tjá mig í bili!
Þangað til næst...
Bleller!
»
18.01.2007 09:26:56 / Sara
Já
bloggidí blogg!! Það er reyndar lítið í fréttum en það
verður bara að hafa það! 
Ég er að
deeeeeyja af því að mig langar svo að fara til útlanda! Í svona
verslunarferð bara með vinkonunum Djöfull væri það NICE !
Að skreppa bara í nokkra daga til Danmerkur og bóka sig inná hótel
sem væri bara staðsett á Rådhuspladsen Og vera bara sinn eigin
herra Fara að versla um leið og búðirnar opna, kíkja í tívolíið,
Fara út að borða á hverju kvöldi og hafa bara einum of gaman!
Ef ég mætti velja myndi ég vilja fara aftur til Flórída...en
það er bæði alltof dýrt og alltof hættulegt...allavegana ef við
erum að fara einar Danmörk er samt í næsta sæti hjá mér
Það eru samt svo margar sem eru að fara til Danmerkur í sumar
þannig að ég held að við myndum kanski fara eitthvert annað 
Mér finnst að við ættum bara að stefna að þessu í sumar Mér
líst of vel á þetta!! Vinkonur
mínar, eruði game eða?!?!?
(bannað að monta sig yfir því í kommentum að maður sé að fara til
danmerkur eftir nokkra daga! Hóst Svava!)
Vá það liggur bara við að ég fari og panti ferð núna!
Við vorum
akkurat að tala um svona utanlandsferðir hérna í eyðu í gær og þá
barst talið eeeeenn og aftur að draugahúsi sem t.d. Beglí og Hörður
fóru í þegar þau voru staðsett í Lizenberg(?) í Svíþjóð.
Þetta er s.s. draugahús þar sem fólki er hleypt inn í litlum hópum
og það stendur í einfaldri röð með hendurnar á öxlunum á manninum
fyrir framan Beglí btw lenti fyrir aftan einhverja svaka mjóa 7
ára stelpu...HAHA ekki mjög hughreystandi!
Og svo hefst förin í gegnum draugahúsið og ég sé hárin rísa á
Beglí.... og er ekki frá því að það myndist pínu pollur í
buxurnar.....þegar hún byrjar að tala um þetta, svo mikið tók þetta
á hana! Þetta er bara það hræðilegasta sem fólk hefur
lent í!
Eftir
þessa sögu fór ég svona að hugsa hvort ég gæti nú ekki sagt
einhverjar krassandi sögur af mínum draugahúsaferðum
En ég verð nú að viðurkenna það að þær eru ekki mjög spennandi,
Dæmi :
Ég þorði t.d. ekki að fara í draugahúsið í tívolíinu í
Smáralindinni!!
Í Parken í Danmörku ákvaðum ég, Sissa og Sif að fara í draugahús
sem var staðsett þar... svo af því það áttu að vera 2 saman í
vagni ætluðum við að láta Elvar fara með Sif, því ég og Sissa fórum
saman. En Elvar var eitthvað svo lengi á
leiðinni og maðurinn sem var að stjórna, sendi Sif
bara eina í vagni á stað, og við Sissa fengum SJOKK! Haha það
var eins og einhver hafði verið skotin beint fyrir framan nefið á
okkur við vorum svo skelkaðar og hræddar um litlu systur!!..Svo
vorum við sendar af stað, og ég hélt gjörsamlega að það væri að
koma heimsendir!! Ég hef sjaldan verið jafn hrædd, við öskruðum og
öskruðum og öskruðum þarna í faðmlögum að drepast úr hræðslu. Ég
hélt allavegana að ég yrði ekki eldri!! Ég veit ekki hversu oft ég
bað til guðs á þessari leið á milli öskranna....ég hnipraði mig
bara saman með lokuð augun og bað þess að þetta myndi klárast!

Svo komum við út og fólk var greinilega ekki að búast við okkur í
þessum stellingum, eftir að Sif kom hlægjandi út segjandi "haha
þetta er ekkert mál!"....Við komum þarna út alveg hvítar í framan,
rámar í hálsinum eftir öll öskurin og með tár í augunum! HAHA ég
gat samt ekki annað en hlegið sjálf.... en samt ekki fyrr en eftir
nokkra klukkutíma þegar ég var búin að ná mér 
Það fyndna er samt þegar ég hugsa um þetta eftir á að í samanburði
við draugahúsið hennar Beglí þar sem leikarar hlaupandi á eftir
fólkinu í ógeðslegum búningum, var mitt draugahús
LAAAAME....bara svona dúkkur í laki og hangandi beinagrindur úr
loftunum  
Já það er
gaman af þessu...ég er svona óbeint að játa það að ég er algjör
Chicken! allavegana þegar að kemur að draugahúsum! Ég get samt
djöflast í roosalegum rússíbönum eins og ég fái borgað fyrir það!!
Það er það skemmtilegasta sem ég veit....draugar eru pínu viðkvæmur
blettur hjá mér! 
Þegar ég
fer að hugsa um þetta detta mér í hug eeeeeeeendalausar sögur af
mínum skrautlegu og skemmtilegu utanlandsferðum...en ég ætla nú að
hlífa ykkur í bili 
Ég verð núna að fara að læra þannig að ég kveð ykkur í bili
=*=*
Sara Chicken!

»
03.01.2007 02:15:25 / Sara
Jæja, Gleðilegt nýtt ár! 
Vá hvað tíminn er fljótur að líða, mér finnst svo stutt síðan við
héldum uppá aldarmótin, það gætu verið 2 ár fyrir mér!...en neinei,
það eru 7 ár síðan!
Maður verður orðin gamall áður en maður veit af 
En ég er búin að vera að flakka á milli bloggsíðna í dag, eins og
alla aðra daga, og nú eru öll nýjustu bloggin einhverskonar
samantekt af árinu. Þannig að ég fór að hugsa, hvað það nú væri sem
hefði staðið uppúr á þessu ári og mér datt nokkrir hlutir í hug sem
eru til dæmis þessir....
Ítalíuferðin
sem ég fór með HK Það var ekkert smá skemmtileg ferð! Kanski
fyri utan Króatísku stelpurnar sem litu út eins og burstaklipptir
strákar og voru svolítið í því að taka myndir af okku Íslensku
stelpunum meðan við vorum að skipta um föt!! ... hehe ég er
bara rétt að jafna mig á því núna!

Flórídaferðin
sem við systurnar fórum í með Jónsa, Rósu og fjölskyldu ber
náttúrulega höfuð og herðar yfir allt annað sem gert var á þessu
ári. Þetta var skemmtilegasta utanlandsferð sem ég hef á ævinni
farið í! Og einnig sú heitasta þar sem hitinn náði hámarki
þegar hann fór uppí 48°C, fjúúff!! 

Svo var það næsta sem mér datt í hug....
Það fólk sem er virkilega búin að setja svip sinn á árið hjá mér
eru auðvitað Guðbjörg Inga og Jóhannes...eða réttarasagt Gugga
og Jói...Þrátt fyrir að ég þekkji þau ekki neitt tókst mér að
þykja hrikalega vænt um þau og talaði varla um annað...eins og
vinir mínir tóku kanski eftir...en það var nú samt kanski ekki
allslæmt því núna kann maður betur að meta það sem maður hefur en
áður, þau höfðu allavegana þannig áhrif á mig 
Einar Ágúst
kom sér aftur á rétta braut. Það voru bara með þeim bestu fréttum
sem ég heyrði á árinu!! 

Svo dettur mér bara ekkert í hug! ....er það ekki svolítið
sorglegt???
Það er nú kanski ekki mikið að marka þetta þar sem ég og sögnin “að
muna” fallbeyjumst ekki mjög vel saman ......(HAHA ég var að
reyna að finna uppá einhverju nýju og kúl og tókst ekki betur en
þetta)
En ég er samt líka stollt af einhverju sem ég gerði á árinu.
Til dæmis því að ég er ekki byrjuð að drekka ennþá, og ég ætla bara
að reyna að geyma það sem lengst, eða helst bara sleppa því 
Svo náði ég öllum prófunum þrátt fyrir mikið strit og púl og lítinn
svefn Mér finnst það mjög mikil heppni þar sem ég var að
frumlesa mjög mikið fyrir prófin. Ég er líka búin að setja mér það
markmið að ég ætla að taka mig á í skólanum á næstu önn og standa
mig betur Og ég ætla að reyna að standa við það svona einu sinni
hehe 
En það var náttla fullt meira skemmtilegt sem ég gerði á árinu, ég
fór í mörg mjög skemmtileg afmæli, og á mörg skemmtileg böll og
gerði margt skemmtilegt með vinum mínu, þúst náttla bara eins og
hver annar 
Svo er ég byrjuð að læra á bíl og svoleiðis fínerí...
Það er reyndar eitt ball sem stendur uppúr og það er ball sem ég
fór á bara núna um daginn og það er Lokaball Í Svörtum
Fötum sem var haldið á Nasa. Það var nú bara
skemmtilegasta ball sem eg hef farið á!!
Það eru nú líka bara með sorglegustu fréttum ársins hjá mér, það að
uppáhalds,uppáhalds! hljómsveitin mín er að hætta 

Mér finnst samt ekki mjög gaman að liggja hérna og ætla að blogga
um eithvað skemmtilegt sem gerðist á öllu árinu og detta svo bara
ekkert í hug....
Það skal sko ekki vera þannig á næsta ári því ég ætla að reyna að
gera eins mikið af skemmtilegum hlutum og ég get!! Kanski
maður bara skjelli sér í fallhlífastökk?!? Eruði Game eða?
Lífið er það stutt að máður á auðvitað að lifa því útí það ítrasta
og gera bara það sem mann langar til ...eða svona næstum
því..
En ég hef lítið annað að segja en ég ætla að gera svona lista
hérna:
Manneskja ársins : Jónsi
Vinkona ársins : Beglí
Vinur ársins : Jónsi Stelpa ársins : Sifalingur 007

Strákur ársins : Guðjón bróðir 
Krútt ársins : Hrafntinna, Eva og Viktor 
Snilingur ársins : Þokkalega Heiðrún og auðvitað Begga
(aðeins meira en Heiðrún)!! 
Bytta ársins : Hörður og Daði! Tuðari ársins : Svava
og Anna Fanný 
Vitleysingur ársins : Torfi
Von ársins : Gugga, Jói og Einar
Á.
Vonbrigði ársins : ******** 
Pynting ársins : Boot Camp!
Stolt ársins : Nammibindindið okkar Beggu og Beglí

Sigur ársins : ??
Skemmtun ársins : Flórídaferðin

Bloggsíða ársins : Fyrir utan þessa?? Potorros og Rauðskaufi.

Bloggari ársins : Torfi
Hljómsveit ársins : Í Svörtum Fötum 
Dúett ársins :
HÁRSKERARNIR! 
Lag ársins : Taktu mig : Snooze 
Lesandi þessarar síðu ársins : Þú 
Jájá...og svo mætti leeeengi telja 
En meira var það ekki í bili 
Sara
p.s. HÆTTIÐI svo að kvarta krakkar!! Listanum verður ekki breytt
meira!! HAHA
»
26.12.2006 23:32:39 / Sara
Jæja, þá hef ég tíma til að blogga smá

Jólin hjá mér eru búin að vera alveg æðisleg Það eina
sem mætti bæta er það að þetta er alltof fljótt að líða, allavegana
miðað við það hvað það tekur mann langan tíma og mikið stress að
versla og undirbúa fyrir aðfangadag og svo er hann bara búin áður
en maður veit af 
En hérna er eitthvað sem ég gerði fyrir jól...það sem ég
man Minnið er orðið að mjög skornum skammti hér á
bæ
Ég náði öllum prófunum Sem betur fer! ég veit ekki hvað
ég hefði gert annars!
Það sem ég gerði fyrir jólin til að afla mér peninga fyrir
jólagjöfum var að taka til hjá vinafólki Þótt það virki
eitthvað lame, þá veit ég það að ég hafði það miklu skemmtilegra en
margir aðrir sem voru að vinna Og náði að afla peninga fyrir
öllum jólagjöfunum og rúmlega það! Össss haha nokkuð
gott!
En það var nú ekki eina vinnan sem ég hafði!, hehe
HK-ingar í 2.fl kvenna og karla voru fengnir til að stjórna umferð
í Smáralindinni, eða réttara sagt að vísa fólki í stæði, í gulum
vestum og með rauð ljós Það er sko kúl! En ég verð nú að
segja að það var ekkert eitthvað leiðinlegt, nema þegar fólk var
með dónaskap, sem ég skil ekki því við vorum bara að spara fólki
vesenið að keyra um allt og finna sér stæði, en jólastressið var
aaalveg í hámarki. Frekar leiðinlegt að lenda í þannig, líka vegna
þess að ég er með þannig skapgerða að yfirleitt ef fólk er með
eitthvað bögg svara ég oftast fyrir mig ... En það gekk ekki
þarna...maður átti bara að brosa og segja "Gleðilega hátíð"
....haha en það gekk bara ágætlega 
Þann 22.desember átti svo Heiðrún afmæli Kjellan varð 17 ára
og er nú komin með bílpróf Til hamingju með það Rúna mín
=*=*

Heiðrún sææta 
Svo á Þorláksmessu fór ég í skötuboð klukkan 2, til frænda
míns...ég verð nú að viðurkenna það að mér finnst skata ekkert
neitt sérstaklega góð En ég reyndi nú að borða hana. Svo eftir
það að fór ég með mömmum, Sif og Stóru systur minni í Smáralindina
og var að reyna að finna einhverjar jólagjafir Fann jólagjöfina
til mín frá mömmu og pabba , en ekki mikið annað
En svo um kvöldið þá kíkti ég aðeins með Heiðrúnu í blómabúð og svo
fljótlega kom Svava hárskeri að ná í okkur og við komum aðeins við
í kirkjugarði en bruuunuðum svo að sækja Beggu og
Hrafntinnu og svo beint á Laugarann þar náði ég að
kaupa aallar jólagjafirnar sem ég átti eftir, sem voru nú nokkrar,
á met tíma og eyddi öllum peningnum sem ég var með! Nokkuð gott!,
Heiðrún gerði það líka, enda erum við sko professional shoppers!!
Svo héldum við í smá kakó og kökur til Alexöndru, og þar voru
flestir krakkarnir, nema Torfi sem sagðist vera of kúl til að mæta
.. En þar var mjög þægileg stemming, horfðum á Zoolander og
borðuðum gotterí Svo kyssti maður nú alla krakkana gleðileg jól
og hélt svo heim að sofa 
Aðfangadagsmorgunn var mjög góður, ég var rifinn á fætur
og ég henti mér í fínu fötun því það var afmæliskaffi heima...við
þríbbarnir urðum s.s. 17 ára þann dag Gaman af því! Og við
fengum margt fallegt í afmælisgjöf og ég vill þakka kærlage fyrir
mig =*=*=*
Já svo var svona pínu gestagangur allan daginn, fólk að koma með
pakka og svona Svo kíktu flestir krakkarnir líka í heimsókn og
svona..bara til að óska gleðilegra jóla og skiptast á pökkum og
svona...nema náttla hann Torfi svali úffff haha!
En já svo um kvöldið borðuðum við mjög góðan jólamat, það voru
rjúpur í matinn... sem mér finnst b.t.w. ÓGEÐSLEGAR!! þannig að ég
fékk mjög gott lamba fille .... En sko það er ekki nóg með
það að rjúpurnar séu ógeðslegar á bragðið heldur er ÓGEÐSLEG
lykt þegar það er verið að elda þær!! Haha Ég er samt ekki
ein um þá skoðun því hann Trausti vinur minn kom í heimsókn og eitt
af því fyrsta sem hann gerði þegar hann kom inn var að taka fyrir
nefið og segja "Ooojjj hvað það er vond lykt hérna!!" HAHA
....þannig að ég fór bara uppí herbergið mitt..opnaði gluggan
eins mikið og ég gat, kveikti á tveimur ilmkertum og hafði lokaða
hurðina..svo þessi lykt kæmist ekki inn í herbergið mitt!!

En svo við höldum áfram með söguna þá var maturinn æðislegur Svo
tókum við saman af borðinu og settumst síðan inní stofu og tókum
upp pakkana Þetta voru nú freekar margir pakkar undir
trénu Gaman Gaman!
Og ég vill bara nota tækifærið og þakka öllum kæææærlega fyrir mig!
Ég kyssi ykkur svo þegar ég hitti ykkur en vááá sko ég fékk svo
mikið af æðislegum gjöfum!! Takk kærlega fyrir mig!
=*=*=*=*=*
Það er bara eitt sem vantaði þessi jól ...og það er hún Beglí,
sem er núna stödd útí Austurríki En hún kemur heim 29. þannig að
hún missir nú ekki af áramótunum kjellan! Hlakka til að sjá þig
=*
En ég var að flétta í gegnum albúmin okkar hérna um daginn
og fann fullt af myndum af okkur krökkunum á yngri árum sem ég ætla
að skella hérna inn Rekja ævina okkar hérna aðeins
:

Sá sem getur giskað á það hver er hvað hérna er
Meistari!!

Á Jólum 

Hahaha 

HAHA ég fékk gleraugu, og krakkarnir vildu endilega vera eins og
ég, þannig að þau fengu svona plast! 

HAHA Guðjón vildi alltaf vera með tagl eins og systur
sínar!!

Að bursta tennurnar ...

Þríburar með Þríbura! 

Það er svo fyndið að skoða fötin sem maður var nú í þegar maður var
lítill! Þetta eru algjörir trúðabúningar!! ...samt alveg krúttleg


Hver er hvað?!?!? 

Vinir ?

haha Looooong time ago! 

Svona erum við svo í dag...eða næstum því 
HAHA jæja þá er ég búin í bili!! 
Vonandi áttuð þið æðisleg jól!! =*=*
Sara
»
24.12.2006 07:22:27 / Sara
Núna er loksins komið að
því!! 
"Í kvöld, jólin er'að koma , í
kvöld jólin er'að koma"
GLEÐILEG JÓL ALLIR LANDSMENN
NÆR OG FJÆR !! MEGIÐI HAFA ÞAÐ MEGA GOTT YFIR
HÁTÍÐIRNAR!!
Lov and
Kisses!!
Sara (sem einnig varð 17 ára í
dag!! og fær þar af leiðandi 2falt pakkamagn! nananabúbú!!
)
Já..þetta er frábær dagur!..
Njótið hans! 
»
15.12.2006 19:01:44 / Sara
»
10.12.2006 23:55:45 / Sara
Prófin eru byrjuð......og ég er að
bugast!
Vá hvað þetta próf-stúss allt tekur á!!
Núna er ég búin að fá 2 próf, náttúrufræði og íslensku, sem eru
reyndar stærstu lesfögin en á 2 próf eftir, Stærðfræði og
félagsfræði..og sem fyrr segjir, ég er að bugast.
Náttúrufræðin gekk bara vel enda lærði ég mjög vel
og samviskusamlega fyrir hana, svo tók einhver
kæruleysiskafli við hjá okkur krökkunum eftir mikinn og
strangann lærdóm hjá okkur og við ákváðum baaara að fresta
öllu til morgundagsins, og byrjuðum svo að læra daginn eftir
en þá var það síðasti dagurinn fyrir próf og þá fengum við
þetta allt í hausinn... ég hef aldrei vitað annan eins lærdóm
sko!! Vaaahá! Miðað við krakkana sem ég er búin að tala
við úr öðrum skólum þá er íslenskan hjá okkur með laaang
mesta lærdóminn...enda sat ég hérna heima frá klukkan 11 um
morgunin, og lærði og lærði, fór svo heim til Heiðrúnar um
5, þar sem Anna Fanný, Sif og Begga voru, og lærði og
lærði, fór á æfingu 8-9 fór svo beint til Heiðrúnar og lærði
og lærði, Svo seinna um kvöldið komu Atli og Höddi og við
lærðum og lærðum straight til klukkan 7 um morguninn, fór þá
heim skipti um föt og uppí skóla í prófið!
Skemmtilegt?? neeee!!
Ég datt líka bara út í prófinu, ég var ooof þreytt, og þetta var
erfitt próf.. og ég náði ekki að hugsa alveg nógu vel, heilinn var
ekki alveg uppá sitt besta þannig að ég þori ekki að
segja til um hvernig þetta fer 
En úr því í annað, Hafiði pælt í
því að það eru bara sléttar 2 vikur til jóla  
Ég veit ekkert hvað ég á að gefa fólki í jólagjöf!! Einhverjar sér
óskir??... Er búin að vera að hugsa og hugsa um þetta, dettur bara
ekkert í hug! 
Hvað er "inn" í ár fólk??? Koma svo, tjá
sig!
Það er mig langar í eeeer WORLD PEACE!! Og ef þið
hafið ekki efni á því betlararnir ykkar þá sætti ég mig alveg
við 1-2 stk Bjöllu! Og hana nú!
Allt annað er afþakkað takk...
En hey nýjar og betri fréttir frá
Söru, sem er ávallt fyrst með fréttirnar!!
Muniði
það  Það er komin ný hljómsveit í gagnið,
eða hún er allavegana í svona pínu tilraunastarfssemi núna
fyrir jólin og það er hljómsveitin Phönex sem er skipuð af
þeim Júlla (hljómborðsleikara Skímó) Vigni Snæ (Gítarleikara
og söngvara í Írafári) Benna Brynleifs (Trommara úr Englum)
og hinum guðdómlega fallega og frábæra kassagítar leikara og
söngvara, Einari
Ágústi !! JÁÁÁ TAKK!!! Þetta er sko band að
mínu lagi!! Hlakka mikið til að fylgjast með þeim, hef á
tilfinningunni að þetta band eigi eftir að vera með þeim
betri í bransanum!! En eins og allir vita, þá toppar
engin Svörtu Fötin.. en þeir gætu
kanski komust nálægt þeim 
Svo spennóó!!

No words needed!!
Annars hef ég líka slæmar fréttir að færa af mínum
ástkæru vinum Guggu og Jóa 
Þau eru fallin aftur  
En ég vona að þau nái sér á strik aftur, allt er þegar þrennt er
eins og máltækið segjir Ég hef allavegana fullllla trú á þeim
þótt ég þykist vita það að mörg af ykkur sem lesið þetta hafið það
ekki...
Ég væri til í að sleppa því að fá World Peace og Bjöllu í jólagjöf
ef það myndi þíða að þau myndu ná sér upp úr þessu 
Bara ef lífði væri það einfalt... 
Já svona er þetta..ég ætla að fara núna að sofa og
vakna svo sneemma í fyrramálið og halda áfram að læra fyrir
stærðfræði!! Líf mitt er frábært og fjölbreytt þessa dagana!!

Hehe
Bleller!
Sara
»
06.12.2006 19:46:09 / Sara
Þetta er eitthvað sem
er þess vert að hugsa um 
Vinur minn opnaði
undirfataskúffu konu sinnar og tók upp gjafapakka vafinn inní
silkipappír:
"Þetta er enginn
venjulegur pakki."
Hann opnaði pakkann og
starði á bæði pappírinn og undirfötin sem í honum
voru.
"Ég gaf henni þetta
þegar við fórum til New York í fyrsta sinn fyrir 8 eða 9 árum
síðan. Hún hefur aldrei farið í þetta. Var að spara það fram að
sérstakri stund.
Eða . . . ég held hún hafi verið að spara það." Hann færði sig nær
rúminu og setti pakkanum hjá hinum fötunum sem hann ætlaði að taka
með á jarðarfararstofuna, konan hans var nýlátin. Hann sneri sér að
mér og sagði:
"Það á aldrei að geyma eitthvað
til þess að nota það á sérstakri stund. Hver dagur er sérstök
stund."
Ég held enn að þessi orð hafi breytt lífi
mínu.
Núna les ég meira og
þríf minna.
Ég sit í garðinum án
þess að hafa áhyggjur af neinu.
Ég eyði meiri tíma með
fjölskyldunni og minni tíma í vinnunni.
Ég skildi það þarna að lífið á að vera uppspretta reynslu sem maður
á að njóta en ekki aðeins að þrauka í gegnum. Ég geymi ekki ekki
neitt lengur, ég nota kristalsglös á hverjum degi. Ég fer í nýju
fötunum mínum í búðina, ef mig langar til
þess.
Ég geymi ekki uppáhalds
ilmvatnið mitt fyrir sérstök tækifæri. Ég nota það hvenær sem mig
langar til. Orðin "einhverntíman" og "einhvern daginn" eru að
hverfa burt úr orðaforða mínum. Ef það er þess virði að sjá, hlusta
eða gera, þá vil ég sjá hlusta og gera það núna. Ég veit ekki hvað
eiginkona vinar míns hefði gert ef hún hefði vitað að hún yrði ekki
með okkur morguninn eftir, það getur enginn vitað. Ég held að hún
hefði hóað í fjölskyldu sína og nánustu vini.
Hún gæti jafnvel hafað kallað á gamla vini til að koma sátt á
fornar deilur. Ég vil líka gjarnan trúa því að hún hefði farið út
að borða á kínverskan veitingastað, sem var hennar uppáhald. Það
eru þessir litlu hlutir sem ég myndi sjá eftir að hafa ekki gert,
ef ég vissi að minn tími væri kominn.
Ég myndi
sjá eftir því að hafa ekki gert þetta vegna þess að ég mun aldrei
framar sjá vini mína, og bréf . . . bréf sem ég ætlaði alltaf að
skrifa. . . "einhverntíman."
Ég myndi sjá eftir því og vera sorgmædd vegna þess ég sagði hvorki
systkinum mínum né börnum nógu oft hversu mjög mér þætti vænt um
þau.
Núna reyni ég hvorki að fresta, tefja eða geyma nokkuð sem gæti
fært gleði og hlátur inní líf okkar.
Og á hverjum morgni segi ég við sjálfa mig þetta er minn sérstaki
dagur.
Hver dagur, hver stund, hver mínúta er sérstök.
Ef þú færð þetta bréf þá er það vegna þess að einhverjum þykir vænt
um þig og vegna þess, sennilega, að þarna úti er einhver sem þér
þykir líka vænt um.
Ef þú ert of upptekin til að senda þetta til annarra og segir við
sjálfa þig að þú munir "senda þetta við betra tækifæri" mundu að
"Einhvern daginn" er langt í burtu . . . eða kemur kannski aldrei.
. .
-Sara
»
04.12.2006 14:58:34 / Sara
Jæja núna er próf-törnin að byrja þannig að bloggið þarf
að líða lægri hlut næstu daga.
Ég
sit hérna núna með Beggu og Sif og við erum að læra
Náttúrufræði
Duglegar við!!
En
ég vill bara óska öllum þeim sem eru byrjaðir í prófum, eða eru að
byrja góðs gengis..
Ég
er allavegana farin að læra! 

»
29.11.2006 10:44:43 / Sara
»
24.11.2006 11:31:38 / Sara
Í Dag er 24.nóvember!!
sem þýðir að það eru bara 30
dagar
í aðfangadag
!!
Það er svo mikið sem ég þarf að gera á þessum 30 dögum að það er
ekki eðlilegt, ég á eftir að kaupa allar jólagjafir,pakka þeim inn
ooog koma þeim í réttar hendur, læra undir jólaprófin, taka
jólaprófin, gera jólahreingerningu á öllu húsinu mínu, hjálpa öðrum
að fera jólahreingerningu á húsunum sínum, baka jólasmákökurnar og
lagterturnar, fara og kaupa jólatré, skreyta húsið hátt og
lágt, skreyta jólatréð , Fara á laugarveginn, æfa mig í
æfingarakstri, taka bóklega bílprófið, halda uppá afmælið mitt, Búa
til laufabrauð, fara í jólaboð, búa til kakó....! Og svo lengi
mætti telja! 30 dagar eru bara alls ekki nógur tími til þess
ap gera
þetta allt!!
Núna sit ég hérna í frönsku, ég er búin með verkefnið mitt þannig
að ég get bloggað með hreinni samvisku, Kennarinn er búin að setja
jólalög í tækið og þau óma hérna um alla stofu.... á frönsku
reyndar... hehe nú er ég að hlusta á "Ó Helga Nótt" á frönsku
hehe stemming, og ég er komin í þvílíkt jólaskap!

Í kvöld ætla líka allar stelpurnar í fótboltanum...+
Gulli auðvitað að koma heim til mín og við ætlum að éta
piparkökur og drekka kakó og spila og svona Það á
eftir að vera mjög gaman vonandi....nema það að ég má ekki
borða piparkökur ..Ekki Beglí heldur .....bömmer...en við
fáum okkur bara eitthvað annað gott 
En já ég er núna komin með æfingarakstur
þannig að þið munuð sjá mig brunandi á götum bæjarins
..haha…..hvort það sé gott eða vont, verðið þið bara að
meta .. hehe en ég held ég sé nú ágætir bílstjóri!

En ég nenni ekki að skrifa meira 
Sí jú!! =*
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|